Donate online

  Du är i: Nyheter
  Dagens datum:
Two resettled refugees in Iceland talk to visitors in the exhibition, in the centre of  Reykjavik
World Refugee Day 2006 - Two resettled refugees in Iceland talk to the visitors in the tent of Red Cross and UNHCR. Photo: UNHCR/K. Rodriguez

Þó nokkur fjöldi fólks lagði leið sína í tjald Rauða kross Íslands og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í tilefni alþjóðadags flóttamanna sem haldinn var 17. júní s.l.

Tjaldi hafði verið komið fyrir í Mæðragarðinum við Lækjargötu til að vekja athygli á stöðu flóttamanna heima og heiman. Gátu gestir til að mynda skoðað myndir úr flóttamannabúðum í Rúanda og Chad, kynnst flóttamannaverkefninu í Reykjavík, fengið upplýsingar um starf Rauða krossins, Reykjavíkurborgar og Flóttamannastofnunar í málefnum flóttafólks og svarað léttum spurningum varðandi flóttamannamál.

Gestum stóð einnig til boða að láta merkja sig sem flóttamenn með armbandi sem Flóttamannastofnun notar gjarnan og prófa næringaríkar próteinkexkökur sem eru stundum eina fæðan sem flóttafólk fær í flóttamannabúðum. Fulltrúi svæðisskrifstofu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Stokkhólmi kom sérstaklega til Íslands til að hjálpa til við skipulagningu dagsins og til að kynna starfssemi Flóttamannastofnunarinnar.

Að sögn Atla Viðars Thorstensen, verkefnisstjóra hjá Rauða krossi Íslands, tókst dagurinn vel. "Þótt við hefðum vel getað tekið á móti fleira fólki erum við mjög ánægð með þá athygli sem hátíðargestir veittu alþjóðadegi flóttamanna. Fólk er greinilega meðvitað um að það eru milljónir sem búa við óbærilegt ástand og neyðast til að flýja heimaland sitt í von um skjól í öruggu landi og það var gaman að taka á móti fólki sem sýndi málefnum flóttafólks svona mikinn áhuga. Við vorum að halda upp á daginn í fyrsta skipti á Íslandi og kannski gerum við það aftur að ári og fáum þá enn fleiri áhugasama gesti til okkar."

In English - click here!


 

Sök UNHCR on-line
Söktips

"Baltic - Nordic Headlines"
News summaries in English about refugee issues in the Baltic and Nordic countries.

The Dublin II Regulation
- a UNHCR discussion paper

EU urged to revise its Dublin II Regulation in order to protect the rights of refugees and asylum-seekers.



Copyright 2001 - UNHCR. All Rights Reserved. Site design by Pentagram